Villa kom upp.
|
|
|
Ásýnd og yfirbragð hönnunar Lincoln Navigator gerir nærveru þessa fullvaxna lúxusjeppa afar sterka. Hún er í raun yfirlýsing út af fyrir sig. Navigator er búinn þeim þægindum sem hugurinn girnist. Rýmið er stórkostlegt og valhnota og satínmjúkt leðrið eru áberandi í innréttingunni. Sérlega fágaður jeppi. Framúrskarandi. Þetta er Lincoln. Vélin er 300 hestöfl og knýr þig á aðeins 8 sekúndum í 100 km. Í Lincoln Navigator getur þögnin ráðið ríkjum meðan þú rennur mjúklega áfram eftir veginum. Annars nýturðu fyrirhafnarlausra samskipta við aðra farþega eða lætur hljómflutningstækjunum eftir að fylla rýmið af yfirburðahljómgæðum. Í Lincoln Navigator öðlastu slökun og nýtur lífsins. Veldu Lincoln. Lúxusmerkið sem vinir okkar vestra velja af öryggi fyrir forseta Bandaríkjanna.
Komdu í Brimborg og þú ert á öruggum stað viljir þú þjónustu sérfræðinga Lincoln á Íslandi.