Lincoln hefur um langa hríð verið eitt helsta bílmerkið vestan Atlantsála en hefur á síðustu árum háð harða baráttu á eðalbílamarkaðnum. Nú hefur Lincoln tekið af sér silkihanskana og ætlar sér stóra hluti á næstu árum og fyrri sess í greininni. Sem dæmi um einbeittan vilja hjá Lincoln má nefna nýja crossover-bílinn MKX og hinn nýja stallbak MKZ. Áður hefur verið fjallað um MKX hér á vefnum og að þessu sinni beinum við því sjónum okkar að MKZ.
USA Today fjallaði nýlega um MKZ og þann metnað Lincoln að ná aftur fyrri stöðu sem leiðandi aðili á eðalbílamarkaði. Aðeins eitt ár er síðan forveri MKZ, Zephyr, kom á markað. Svo mikil þróun hefur átt sér stað hjá Lincoln að nú er næsta kynslóð af Zephyr, þ.e. MKZ, komin á markað en yfirleitt verða kynslóðaskipti á þriggja til fjögurra ára fresti.
Til þess að ná fyrri stöðu á eðalbílamarkaði þarf Lincoln að koma með einstakan bíl að sögn blaðamanns USA og segir hann að MKZ geti einmitt verið bíllinn sem endurreisir merkið, ef svo má að orði komast. Lincoln MKZ er búinn 3,5 lítra V6-vél sem að sögn blaðamannsins býður samtímis upp á kraft og mýkt en er þar að auki afar hljóðlát. Fjöðrun er stíf og þægileg en jafnframt segir blaðamaður það skemmtilega upplifun að stýra bílnum. Innlit bílsins er ennfremur afar fallegt og innviðir bílsins hannaðir með það að markmiði að gera hann eins hljóðlátan og mögulegt er.