Ford, framleiðandi Lincoln, hefur hafið sölu á Lincoln bílum á vefsvæði Amazon og hófst sala í gær, mánudag. Greinilegt er að Ford lítur á vefinn sem mikilvægan stað í markaðsmálum, sem verði að sinna með engu minni áherslu en öðrum leiðum í sölu vöru og þjónustu.
Bílarnir MKZ sedan, MKX og Navigator hafa fengið eigið vefsvæði á Amazon þar sem viðskiptavinir geta pantað bíl með einni smelliskipun. Við það tengjast viðkomandi vefsvæði Lincoln þar sem viðskiptavinirnir klára pöntunarferlið.
Skoðið Amazon. Smelltu HÉR til að sjá síðu MKZ.