Lincoln hefur jafnan verið þekkt fyrir að framleiða glæsilega bíla og tengjast fá bílmerki lúxus jafn sterkum böndum. Nú hefur hulunni verið svipt af 2007 árgerðinni af Navigator jeppanum og hinum nýja og stórglæsilega MKX. MKX er svokallaður crossover bíll - þ.e. bíll sem hefur útlit sportjeppa en er byggður á fólksbílagrind og er mun hagkvæmari í rekstri - og mun hann taka við að Aviator. MKX er sagður líkur Ford Edge að mörgu leyti og eru báðir þeir settir saman í verksmiðjum Ford í Kanada, en það mun vera í fyrsta skipti síðan 1936 sem Lincoln-bíll er settur saman í Kanada.
MKX er fyrsti crossover-bíllinn frá Lincoln en samkvæmt fréttum að utan gefur hann öðrum bílum, s.s. Navigator, ekkert eftir hvað varðar lúxus og er honum ætlað að keppa við Lexus RX og Cadillac SRX og BMW X3.
Það þarf ekki að kynna Lincoln Navigator sérstaklega fyrir íslenskum bílaáhugamönnum enda má sjá nokkra slíka bíla á götunum. Í 2007 árgerðinni hefur verið skerpt enn frekar á línum bílsins og þeim lúxus sem einkennt hefur Navigator frá upphafi.
Það verður spennandi að sjá hvaða viðtökur Lincoln Navigator 2007 og Lincon MKX 2007 fá hjá gagnrýnendum og almenningi.
Fylgstu með.