Lincoln hefur treyst sig í sessi hér á landi síðustu misseri meðal þeirra sem leggja mikið upp úr lúxus og glæsileika.
Enda ekki að furða, því innréttingarnar gætu varla verið glæsilegri en í Lincoln Navigator, mælaborðið gert úr valhnetu og sætin úr fyrsta flokks leðri. Hljóðkerfið er eitt það flottasta sem í boði er og það þarf enginn að undrast að tónlistaráhugamenn séu sérstaklega spenntir fyrir þessum eðalvagni.
Tvívirkt miðstöðvarkerfi fyrir farþega í framsætum leyfir ökumanni og farþega að stilla hitann eftir smekk hvors um sig, auk þess sem hægt er að hita og kæla sætin eftir aðstæðum. Ekki væsir heldur um farþega í aftara rými, því þeir hafa sérstaka miðstöð og eigin stillibúnað. Stillingar á bílstjórasæti, fótstigum og speglum er hægt að festa í minni svo bílstjórar geti gengið að réttum stillingum vísum um leið og sest er undir stýri. Aksturstölva vakir yfir ástandi bílsins og kemur öllum helstu upplýsingum til skila á einfaldan hátt.
Lincoln Navigator er einstaklega rúmgóður bíll, hvort sem það er fyrir ökumann og sex farþega eða farangur af ýmsu tagi. Hægt er að fella aðra og þriðju röð farþegasætanna niður á afar einfaldan hátt til að rýma fyrir farangri af öllum stærðum og gerðum. Og þegar við segjum „einfaldan hátt“ erum við ekkert að ýkja, því niðurfelling þriðju raðarinnar er rafstýrð, auk þess sem afturhlerinn opnast með fjarstýringu. Einfaldara gæti það varla verið.
Þetta er einungis hluti af einstökum lúxus Lincoln Navigator. Enn hefur ekki verið minnst á 300 hestafla vélina eða magnaða aksturseiginleika. Né þá staðreynd að Lincoln Navigator fæst á frábæru verði í samanburði við aðra bíla í sama flokki. Það er ekki nema von að þeir kröfuhörðu velji Lincoln.
Lestu nánar um alla eiginleika Lincoln Navigator með því að smella hér. Komdu svo í sýningarsal okkar að Bíldshöfða 6. Upplifðu Lincoln Navigator.