Brimborg hefur nú fengið fyrsta lúxuspallbílinn frá Lincoln til landsins. Lincoln Mark LT, sem er fyrsti pallbíllinn frá Lincoln, er óvenju glæsilegur, bæði að innan sem utan. Staðalbúnaður er sérlega ríkulegur enda ekki við öðru að búast frá Lincoln. Þar á bæ segja menn: „það sem er aukabúnaður í flestum bílum er staðalbúnaður í Lincoln“.
Samtök bílablaðamanna í Texas kusu Lincoln Mark LT bæði „best hannaða pallbílinn 2005“ og „lúxusjeppa ársins 2005“.
Brimborg hefur starfað í bílgreininni í yfir 40 ár og samkeppnin hefur gert Brimborg kleift að vaxa og ná sífellt stærri hlutdeild á bílamarkaði. Samkeppnin hefur aldrei verið meiri í bílgreininni og margir hafa skoðað þann möguleika að flytja inn bíla beint frá Bandaríkjunum. Langflestir komast á þá skoðun að það borgi sig ekki þegar þeir hafa borið saman verð miðað við eigin innflutning og verð hjá Brimborg. Verðið er frábært. Sama mun gilda um nýja Lincoln pallbílinn en verðið verður kynnt á vef Brimborgar miðvikudaginn 19. október. Fylgstu því með.